Síðuplan
Vefstofa · Reykjavík

Við smíðum vefinn sem fyrirtækið þitt á skilið.

Síðuplan hannar og forritar hraðar, fallegar og aðgengilegar vefsíður fyrir íslensk fyrirtæki – frá fyrstu skissu til síðunnar sem er komin í loftið.

Byrjum að smíða Sjá þjónustu
Þjónusta

Vefsíður sem passa þínum rekstri.

Síðuplan gerir vefsíður fyrir fyrirtæki af öllum stærðum og gerðum. Hvort sem þú rekur kaffihús, hárgreiðslustofu, iðnfyrirtæki, verslun eða ert að stíga fyrstu skrefin með nýja hugmynd, þá smíðum við vef sem passar þínum rekstri.

Við byrjum alltaf á því að skilja hvað fyrirtækið gerir og hverjum það vill ná til. Út frá því hönnum við útlit sem endurspeglar vörumerkið og byggjum vef sem er einfaldur í notkun, hraður og lítur vel út hvort sem hann er skoðaður í síma eða tölvu. Sumir þurfa einfalda kynningarsíðu með upplýsingum og samskiptaformi, aðrir stærri vef með mörgum undirsíðum, og við lögum verkið að því sem hentar hverju sinni.

Markmiðið er að þú fáir vef sem þú ert stolt/ur af og sem vinnur fyrir fyrirtækið þitt. Við sjáum um tæknilegu hliðina, frá hýsingu og léni til þess að síðan finnist á Google, svo þú getir einbeitt þér að rekstrinum. Og þegar vefurinn er kominn í loftið erum við áfram til staðar ef eitthvað þarf að laga eða bæta.

Ferlið

Fjögur skref frá hugmynd að vef.

01

Sendu tölvupóst

Sendu okkur línu á siduplan@gmail.com og segðu stuttlega frá fyrirtækinu og hvað þig vantar.

02

Spjöllum um verkefnið

Við förum saman yfir markmið, markhóp, útlit og hvaða síður vefurinn á að hafa.

03

Forritum og smíðum

Við hönnum og forritum vefinn, setjum inn efnið og prófum hann á öllum helstu tækjum.

04

Opnun

Vefurinn fer í loftið og við kennum þér á hann. Við erum áfram til staðar eftir opnun.

Eigum við að smíða eitthvað saman?

Segðu okkur aðeins frá fyrirtækinu og hvað þig vantar. Við svörum innan eins virks dags með hugmyndir og næstu skref.

siduplan@gmail.com 766 9398 831 2411
Sendu okkur línu

Smelltu á hnappinn og tölvupósturinn þinn opnast, tilbúinn til að senda á siduplan@gmail.com. Segðu okkur nafn fyrirtækisins og hvað þig vantar.

Senda fyrirspurn